Þórunn's profileDancing in the moonlight...PhotosBlogLists Tools Help
Photo 1 of 15
No list items have been added yet.

Dancing in the moonlight ...

January 08

Jólastelpan Erla Gná!

DSC02845   DSC02850
 
DSC02853 
DSC02861
DSC02873
March 10

Komin með nafn :)

Jæja, litla rúsínubollan mín er komin með nafn og heitir daman Erla Gná :) í höfuðið á ömmu Erlu og svo Gná því okkur þótti það einkar viðeigandi og eitthvað svo mikið hún já og auðvitað rosalega fallegt ;)
Við ætluðum að hafa massa nafnaveislu en eftir að hún veiktist ákváðum við að hafa bara nánustu ættingja en eftir að hún fór í matarverkfall ákvaðum við bara að fresta þessu og opinbera nafnið strax. Veislan verður haldin einhvern tímann í ekki náinni framtíð, við vorum/erum bara orðin svolítið þreytt þannig að tilhugsunin um að hafa veislu var einum of yfirþyrmandi.
Ég læt fylgja með tvær myndir af skvísu litlu yndislegu :)
 
 
 
 
March 02

Litla veika tveggja mánaða!

Æ litla dúllan mín fékk rs vírus og var lögð inn á Barnaspítala Hringsins :( Við mæðgur vorum þar í fimm nætur með súrefni í nebba, næringu í æð og sondu sem náði niður í maga :S Hún er samt öll að koma til núna en er ekki alveg batnað, vonandi fer þetta að koma.
 
Litlan verður tveggja mánaða á morgun og í tilefni dagsins set ég inn nokkrar myndir af snúlludúllunni minni.
 
 
 
January 20

Litla sæta tveggja vikna í dag :)

Nú er krúttið okkar orðið tveggja vikna og skelli ég því mynd af henni takandi síðdegisblundinn sinn :)
Hún er auðvitað bara sætust og yndislegust!
Ah, kannski ég setji líka eina með pabbanum ;)
January 14

Mamma Mía!

Þá er maður víst orðinn mamma :)
Laugardagskvöldið 6. janúar fæddist lítil prinsessa, rúmlega 15 merkur og 50 cm.
Fæðingin gekk vel og ég átti í Hreiðrinu án annarra verkjalyfja en glaðlofts, þriggja nála, nokkurra kaldra bakstra og baðs.
Það er greinilega kominn nýr húsbóndi á heimilið en hann var löngu velkominn ;)
Ég skelli kannski eins og einni mynd af henni við tækifæri.
Over and out, Tóta mamma og co.
 

Þórunn

There are no music lists on this space.